Aðventuferð til Berlin
Berlín er höfuðborg Þýskalands og stærsta borg landsins. Það er alveg hægt að segja að borgin hafi eitthvað fyrir alla enda gífurlega fjölbreytt, skemmtileg og lífleg alla daga ársins. Tilvalin fyrir þá sem vilja ríkulega menningu í mat og drykk, árhrifa mikla sögu og fallegar byggingar. Verðlagið í borgin er með því besta sem býðst en borgin er ódýrasta höfuðborg í hinum vestræna heimi og hefur gífurlega mikið úrval verslana, allt frá flottustu merkjunum yfir í 5 hæða secondhand (spootnik) búðir. Borginni er skipt í mörg hverfi og innan hvers og eins er í raun miðbær með tilheyrandi torgum og lífi og góður bar sjaldan meira en 5 mínútum frá.
Jólamarkaðir
Í Berlín er fjöldin allur af jólamörkuðum og munt þú finna nostalgíska jólamarkaði sem og nútímalega með hringekjum ofl. Helstu jólamarkaðirnir í Berlín eru Gendarmenmarkt, Alexanderplatz Christmas Market, Winter World om Potsdamer Platz, Spandau Christmas Market, Charlottenburg Palace Market og Lucia Christmas Market.
Ferðaplan
10. des flogið með Icelandair brottför 7:40 lent í Berlín 12:10
Gist á 4 stjörnu hóteli með morgunmat í 3 nætur (Hótel Berlin Berlin)
13. des brottför frá Berlín með Icelandair kl 13:10 lent í Keflavík kl 15:45