Lýsing
Lýsing
Club de golf Barcelona
Einn rótgrónasti og þekktasti golfvöllur Katalóníu héraðsins á Spáni. Svæðið er staðsett aðeins 27 km frá Barcelona borg tekur um 25 mínútur með leigubíl inn í borgina. Á svæðinu eru tveir golfvellir sem báðir eru hannaðir af einum þekktasta golfara Spánar Jose Maria Olazabal. Masia Bach er 18 holu völlur, par 72 og 6.271 metrar á gulum teig. Völlurinn opnaði árið 1990 hannaður með það í huga að hafa hann krefjandi fyrir alla golfara bæði lengar og styttra komna. Sant Esteve er 9 holu völlur, par 31 og er 1.780 metrar. Falleg hönnun og mikið landslag. Sant Esteve völlurinn er samsettur af einni par 5, tveimur par 4 og sex par 3. Völlurinn hentar vel fyrir byrjendur og er líka mjög skemmtilegur spilunar fyrir lengra komna.
*Verð í golfskóla er 28.000kr
- Nr. 22 á top 100 listanum yfir bestu golfsvæði á Spáni.
- Nr. 85 á top 100 listanum yfir bestu golfvæði í Evrópu.


Frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 552-2018 eða info@tasport.is



Golfvellir
Club de Golf

Masia Bach er 18 holu völlur, par 72 og 6.271 metrar á gulum teig. Völlurinn opnaði árið 1990 hannaður með það í huga að hafa hann krefjandi fyrir alla golfara bæði lengar og styttra komna. Mikið landslag og fljölbreytileiki einkennir þennan glæsilega golfvöll.

Sant Esteve er 9 holu völlur, par 31 og er 1.780 metrar. Falleg hönnun og mikið landslag. Sant Esteve völlurinn er samsettur af einni par 5, tveimur par 4 og sex par 3. Völlurinn hentar vel fyrir byrjendur og er líka mjög skemmtilegur spilunar fyrir lengra komna.
Gisting
Hotel Barcelona Golf Resort 4 Sup ****
Hótelið er 4* ný uppgert frá árinu 2019, staðsett við 1. teig. Það sem einkennir Barcelona golf er rólegt og afslappað umhverfi og fallegt útsýni í fjallshlíðar Montserrat. Húsakosturinn er gerður til að samræmast við hið fallega Penedés svæði sem er staðsett milli Miðjarðahafsins og fjallanna í Montserrat. Svæðið er þekkt fyrir vínframleiðslu og ótrúlega góða matargerð.
Veitingastaðurinn hótelsins býður upp á fjölbreyttan matseðil með árstíðabundnum hráefnum.
OAK Nýr veitingarstaðurinn í klúbbhúsinu opnaði nóvember 2020. býður upp á hefðbundin katalónískan matseðil ásamt fjölbreyttum vikumatseðil. Einnig er í boði fljótlegir réttir eins og tapas, samlokur og hamborgar fyrir á sem vilja.
Spa hótelsins býður meðal annars uppá sundlaug með vatnsnuddi, fótaböð, sauna og tyrknesk böð. Líkamsræktin er opin gestum hótelsins. Einnig er í boði ýmsar meðferðir, þ.mt nudd, Vichy-sturtur, súkkulaðimeðferð, vínmeðferð og cava-meðferð. Aðgangur í spa er gegn aukagjaldi.





Innifalið
- Flug, skattar og gjöld Keflavík – Barcelona – Keflavík
- 20kg innrituð taska, 20kg golfsett og taska/bakpoki sem kemst undir sætið
- Akstur frá flugvelli á hótel og til baka við brottför
- Gisting og morgunmatur á 4* hóteli
- Ótakmarkað golf og golfbíll (ekki á ferðadögum)
- Íslensk fararstjórn
Gistináttaskattur ekki innifalinn
Í boði gegn gjaldi:
- Skoðunarferð á vínbúgarð
- Skoðunarferð til Montserrat
- Útvegum miða á heimaleiki Barcelona
Frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 552-2018 eða info@tasport.is
Golfskóli
- 6 daga kennsla á öllum þáttum leiksins þar sem farið verður vandlega yfir grunnatriði golfsveiflunnar, grip, stöðu, kylfuval, teighögg, brautarhögg, vipp og pútt.
- Kennt verður alla morgna á milli klukkan 9 til 12.
- Golfreglunum ásamt framkomu á golfvellinum og hvernig forgjöf er reiknuð verða gerð sérstök skil.
- Skólinn hentar sérlega vel fyrir byrjendur sem og háforgjafa kylfinga.
- Golfskólinn er kjörin leið til að kunna bera sig að við hin ýmsu högg og auka við sjálfstraustið út á velli.
- Opin námskeið verða einnig í boði eftir hádegi suma daga.
- Námskeiðin henta öllum kylfingum sem vilja vinna sig í átt að betra skori.
- Andrea Ásgrímsdóttir PGA kennari sér um golfskólann í þessari ferð
Golfskólinn kostar kr. 28.000 á mann.