Upplifðu Dublin eins og hún gerist best!
30. nóvember – 4. desember
Verð frá 119.800 kr á mann m.v. 2 fullorðna saman.
119.800 kr. – 154.800 kr.
Flogið er beint til Dublin með Play snemma á fimmtudegi og aftur heim snemma á mánudegi.
Innifalið í verði er flug, innritaður farangur báðar leiðir, akstur til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn og 4* hótelgisting með morgunmat. Hótelið er í göngufæri við helstu kennileiti í Dublin sem og helstu verslanir og veitingastaði borgarinnar.
Dublin er höfuðborg Írlands og á sér einstaklega merkilega sögu sem og umhverfi sem fangar athygli allra þeirra sem heimsækja borgina. Njóttu þess að skoða stórfenglegar byggingar, heimsækja brugghús og kynnast menningu Írlands eins og hún gerist best með einn ískaldann Guinness bjór við hönd að hætti heimamanna.
KEF – DUBLIN – KEF
30. nóvember – 06:50
4. desember – 10:35
Hotel Riu Plaza The Gresham Dublin****
Hótelið er staðsett í sögulegri byggingu á O’Connell Street í hjarta Dublin. O’Connell Street er aðalgata borgarinnar og því mörg af helstu kennileitum borgarinnar í nágrenni við hótelið.
Í göngufjarlægð frá hótelinu er meðal annars að finna fjölda verslana, iðandi mannlíf meðfram ánni Liffey, hinn sögufræga Temple bar og margt fleira.
Herbergin eru rúmgóð og vel útbúin með sjónvarpi, öryggishólfi, straujárni, strauborði og te- og kaffiaðstöðu. Á hótelinu má einnig finna líkamsrækt sem er opin allan sólarhringinn.
Flug, skattar og gjöld Keflavík – Dublin – Keflavík
20kg. innrituð taska og 10kg. handfarangur sem kemst undir sætið
Gisting á 4 stjörnu hóteli með morgunmat
Akstur til og frá flugvelli
Íslensk farastjórn
Gistináttaskattur er ekki innifalinn.