Lýsing
Kláraðu jólagjafainnkaupin á einu bretti í stærstu borg Skotlands!
Flogið er beint til Glasgow með Play snemma á fimmtudegi og aftur heim í hádeginu á sunnudegi.
Innifalið í verði er flug, innritaður farangur báðar leiðir og 4* hótelgisting með morgunmat. Hótelið er á góðum stað í Glasgow í nálægð við fjölda verslana og veitingastaða borgarinnar.
Glasgow er stærsta borg Skotlands og frábær áfangastaður til að heimsækja á aðventunni þar sem borgin er extra lífleg og litrík á þessum árstíma. Einnig er Glasgow frábær staður til að versla jólgjafirnar, gott úrval og hagstætt verðlag. Helstu verslunargöturnar Buchanan, Sauciehall og Argyle Street svo er St. Enoch verslunamiðstöðin staðsett í miðbænum og prince’s Square. Glasgow er mikil menningar borg, þeir sem hafa áhuga á listasöfnum, leikhúsum, tónleikum eða samskonar viðburðum ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi en má segja að borgin sé leiðandi í þessum efnum.


FLUG
KEF – Glasgow – KEF
23. nóvember – 06:45
26. nóvember – 11:00
GISTING
Holiday Inn – Glasgow – City Ctr Theatreland, an IHG Hotel****
Hótelið er vel staðsett í Glasgow eða í um 10 mínútna göngufjarlægð frá aðal verslunargötum borgarinnar.
Herbergin eru nýtískuleg með sjónvarpi og te- og kaffiaðstöðu. Á hótelinu er bar, veitingastaður og herbergisþjónusta.


INNIFALIÐ
- Flug, skattar og gjöld Keflavík – Glasgow – Keflavík
- 20kg. innrituð taska og 10kg. handfarangur sem kemst undir sætið
- Gisting á 4 stjörnu hóteli með morgunmat
Gistináttaskattur er ekki innifalinn.
Frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 552-2018 eða info@tasport.is
AFÞREYING
JÓLAMARKAÐIR
Við St. Enoch square og George square er einn af aðal jólamörkuðunum í Glasgow. Frábært andrúmsloft og skemmtileg stemming þar sem bæði innlendir og erlendir aðilar eru með ýmislegt spennandi í boði í sínum básum. Einnig er hægt að taka hring í paríshjólinu eða skella sér á skauta á torginu. Eftir allt stússið er svo tilvalið að kíkja á þýsku pöbbana í kring og þá fjölbreyttu menningu sem svæðið hefur uppá að bjóða.

Frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 552-2018 eða info@tasport.is