Lýsing
Hvar er betra að byrja jólin en í kóngsins kaupmannahöfn?
Tívolí, verslanir og góður matur í frábærum félagsskap heimamanna.
Flogið er beint til Kaupmannahafnar með Play snemma á föstudegi og aftur heim í hádeginu á sunnudegi.
Innifalið í verði er flug, innritaður farangur báðar leiðir og 4* hótelgisting með morgunmat. Hótelið er á góðum stað í Kaupmannahöfn í nálægð við fjölda verslana og veitingastaða borgarinnar.

FLUG
KEF – Kaupmannahöfn – KEF
1. desember – 06:30
4. desember – 11:45
GISTING
Tivoli Hotel****
Hótelið er vel staðsett í Kaupmannahöfn eða í um 10 mínútna göngufjarlægð frá aðallestarstöð borgarinnar og í um 20 mínútna göngufjarlægð frá Tívolíinu og Strikinu sem er ein aðal verslunargatan í Kaupmannahöfn.
Fyrir þá sem eru í verslunarleiðangri þá er Fisketorvet verslunarmiðstöðin á næsta horni frá hótelinu.
Herbergin eru björt og rúmgóð með sjónvarpi og te- og kaffiaðstöðu. Á hótelinu er líkamsrækt, sundlaug og bar.


INNIFALIÐ
- Flug, skattar og gjöld Keflavík – Kaupmannahöfn – Keflavík
- 20kg. innrituð taska og 10kg. handfarangur sem kemst undir sætið
- Gisting á 4 stjörnu hóteli með morgunmat
Gistináttaskattur er ekki innifalinn.
Frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 552-2018 eða info@tasport.is
AFÞREYING
- Strikið
- Tívolí
- Fisketorvet
- Nyhavn
- Islandsbryggja

Frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 552-2018 eða info@tasport.is