LÝSING
Antalya – Belek – Tyrkland
Paradís kylfingsins – Frábært verð!
Einn af vinsælustu ferðamannastöðum Tyrklands er Antalya, sem er einnig kölluð tyrkneska rivíeran. Antalya er frábær blanda af fallegum hvítum ströndum og hefðbundinni tyrkneskri menningu.
Antalya borgin liggur við samnefndan flóa við suðurströnd Tyrklands og er veðurfarið einstaklega gott allan ársins hring. Tyrkir eru þekktir fyrir einstaka gestrisni, góða þjónustu og ekki síst, góðan mat.
Falleg smábátahöfn og skemmtilegar verslanir innfæddra í gamla bænum gefa borginni skemmtilegan blæ. Hótelin í Belek á eru sannkallaðar lúxusgistingar með “öllu inniföldu”, einkaströndum, vatnsrennibrautum, barnaklúbbum og frábærri sólbaðsaðstöðu. Golfið er í fyrsta sæti þegar kemur að Belek svæðinu með öllum þeim lúxus sem því fylgir, hvort þú vilt spila á morgnana, eftir hádegi eða í flóðljósum á kvöldið eða nóttinni. Ekki er verra að hafa þetta allt saman innifalið inn í pakkanum og dekra við sig í mat og drykk á hótelinu.
Hafið samband í síma 552-2018 eða sendið línu á info@tasport.is fyrir upplýsingar og bókanir.


GISTING
GLORIA VERDE HOTEL (eða önnur glæsileg 5* hótel)
- 7. – 15.október (8 nætur)
