
Manchester United – Tottenham
9 – 12. október 2026
Hafið samband í síma 552-2018 eða sendið okkur póst á info@tasport.is til að fá tilboð.
Þegar ekkert gekk hjá Ruben Amorim kallaði Manchester United í Michael Carrick um áramótin. Og eins og hendi væri veifað umturnaðist gengi liðsins. Ekkert lið í Premier League fékk fleiri stig en United frá áramótum til loka leiktíðar. Leitin að “arftaka” Sir Alex Ferguson hefur verið þyrnum stráð í 13 ár, en margt bendir til þess að Carrick sé sá sem leitað er að. Það ríkir óneitanlega mikil eftirvænting á meðal stuðningsmanna og fátt bendir til annars en liðið blandi sér í titilslaginn.
Heimavöllur Manchester United er Old Trafford. Völlurinn tekur 74.300 manns, fleiri en nokkur annar völlur í eigu ensks félagsliðs.
Hvernig á að bóka?
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
Kef-Manchester
Manchester-Kef
*ATH það er hægt að velja aðra dýrari miða þegar beðið er um verð í leikinn.