Síðumúla 25 108 Reykjavík Sími 552-2018 info@tasport.is (29)
Tottenham Hotspur - Arsenal 21 - 24.Febrúar / Pakkaferð
Bretland
London
4

Tottenham Hotspur – Arsenal

21. -24. febrúar 2026

Hafið samband við TA Sport Travel fyrir frekari upplýsingar í síma 552-2018 eða á info@tasport.is

Tottenham Hotspur – Arsenal

Þrátt fyrir að Totttenham Hotspur ynni sigur í Europa League og þar með sinn fyrsta titil í 17 ár var það ekki nóg til að bjarga Ange Postecoglu frá því að fá reisupassann. Spurs gekk afleitlega í Premier League og hafnaði að endingu í 17. sæti. Daninn geðþekki, Thomas Frank, sem hefur unnið þrekvirki hjá Brentford, hefur verið ráðinn til þess að snúa taflinu við hjá Spurs. Hans bíður klárlega ærið verkefni.

Tottenham Hotspur Stadium, heimavöllur Spurs, er án efa sá glæsilegasti í Englandi. Fullskipaður tekur hann 62.850 áhorfendur.

Tottenham hefur aðeins unnið deildabikarinn einu sinni og FA Cup einu sinni á sl. 25 árum. Liðið hefur tvívegis orðið enskur meistari, unnið FA Cup 8 sinnum og deildabikarinn (League Cup/EFL Cup og nú Carabao Cup) 4 sinnum.

Að þessu sinni mætir Tottenham liði Arsenal.

Dæmi um útsýni úr sæti.

Hvernig á að bóka?

  • Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x 1
  • Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x 2
  • Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x 2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x 1

 

Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir

  • Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
  • Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
  • Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
  • Ferðagögn eru send 7-10 dögum fyrir brottför.

bóka ferð

Myndagallerý

Hafa samband