Verð kr.299.800 á mann í tvíbýli
Hafið samband við TA Sport Travel fyrir frekari upplýsingar í síma 552-2018 eða á info@tasport.is
299.800 kr. – 339.800 kr.Price range: 299.800 kr. through 339.800 kr.
20.–24. febrúar 2025
New York Knicks eru eitt stærsta íþrótta lið heims og spila í frægustu höll heims í Madison square garden.
Þeir hafa verið eitt af bestu liðum NBA deildarinnar síðustu tímabil og stjarna liðsins Jalen Brunson er orðinn ein af hetjum borgarinnar. Það er talað um þegar Knicks spila vel og ná árangri vakni borgin til lífsins og Knicks aðdáendur hafa fengið að fylgja sínum mönnum langt í úrslitakeppni síðustu ár.
Við bjóðum ykkur einstakan aðgang að MSG, óvæntar uppákomur á leikdegi, Karókíkvöld í Korea-Town með hinum eina sanna látúnsbarka Valdimari og matarferð um bestu matar borg í heimi.
Komdu með TA Sport -Travel og Valdimari Guðmundssyni á leik í NBA deildinni í New York.
Ferðatilhögun
20. febrúar – Brottför frá Íslandi og koma til New York. Innritun á hótel og frjáls tími til að njóta borgarinnar.
21. febrúar – Stórleikur: New York Knicks vs. Houston Rockets! Við byrjum daginn á upphitun með fararstjórum þar sem farið verður yfir stemninguna og leikinn sjálfan. Um kvöldið mætum við saman á Madison Square Garden og upplifum leikinn í beinni!
22. febrúar – Matartúr um New York þar sem við kynnustum ólíkum bragðtegundum og fjölbreyttu matarflóru borgarinnar.
22. eða 23. febrúar – Kvöldskemmtun með Valdimari Guðmundsyni – karaoke þar sem sönggleðin ræður ríkjum!
23. febrúar – Frjáls dagur til að kanna borgina: Times Square, Central Park, Broadway, verslanir á 5th Avenue eða heimsókn á söfn og útsýnisstaði.
24. febrúar – Heimferð til Íslands.
Pizzatúr í NYC
Frá hóteli er hoppað í neðanjarðarlest til Prince street í Soho. gengið frá Soho til St.MArks place þar sem hipparnir og Queer samfélagið átti sínar bækisstöðvar.. skáldin bjuggu hér eins og t.d. Patti Smith –
Eftir annað stopp göngum við í gegnum Washington square park á leiðinni í West Village þar sem þjóðlagaskáldin eins og Bob Dylan og Joan Baez þreyttu frumraunir sínar í sexunni (60’s)
Í West Village er hjarta uppistands menningarinnar í borginni, nokkrir af frægustu klúbbum borgarinnar eru hér eins og t.d Comedy Cellar.
Fararstjórar
Hinrik Þór
Valdimar Kúld
Valdimar Guðmundsson
20.feb KEF – New York
24.feb New York – KEF
Hópurinn gistir á Club Quarters Hotel, World Trade Center, sem er nútímalegt og þægilegt hótel í hjarta neðra Manhattan. Hótelið er vel staðsett með stuttum göngum í Wall Street, Battery Park og samgöngur sem tengja þig fljótt við helstu staði borgarinnar.
Herbergin eru snyrtileg og búin öllum helstu þægindum, þar á meðal fríu Wi-Fi, sjónvarpi og kaffivél. Á hótelinu er einnig líkamsrækt, bar og veitingastaður, ásamt þægilegum sameiginlegum svæðum fyrir hópinn að hittast og njóta.
Innifalið í ferðinni
*Ath það kostar inn á Karaoke aukalega ekki innifalið í ferð.