Untitled design
Áramótaferð TA-Sport til Marrakech
Sérferðir
3

Áramótaferð TA-Sport til Marrakech

  1. desember 2026 – 2. janúar 2027

 

Skráningar eru þegar hafnar.

Tryggðu þér sæti í einni glæsilegustu áramótaferð ársins og byrjaðu árið 2027 undir sól Norður-Afríku.

 

Takmarkað sætaframboð

Verð

Price range: 299.800 kr. through 396.800 kr.

LÝSING

Kveðjum árið með stæl í Marrakech!

TA-Sport Travel býður í einstaka áramótaferð til Marrakech þar sem sól, golf, lúxus og framandi menning mynda fullkomna

umgjörð fyrir ógleymanleg áramót.

Dvalið verður á glæsilegu og nýuppgerðu Pickalbatros Hotel, þar sem allt innifalið er í verði og aðstaðan fyrsta flokks. Hótelið býður upp á þrjár sundlaugar, fjölbreytta veitingastaði og glæsilegan golfvöll í bakgarðinum þar sem hægt er að njóta golfs frá morgni til kvölds. Við höfum áður farið með hópa til Marrakech um áramót og viðtökurnar voru frábærar. Veðrið á þessum árstíma er einstaklega notalegt og Marrakech er einn vinsælasti áfangastaður Evrópubúa yfir hátíðarnar.

 

INNIFALIÐ

  • Flutningur til og frá flugvelli
  • 7 nætur á 5★ Pickalbatros Hotel
  • Allt innifalið á hótelinu
  • Opinn bar frá 11:00–23:00
  • Ótakmarkað golf með golfbíl í 6 daga
  • Pickalbatros golf club, við hliðina á hótelinu
  • Gala kvöldverður á gamlárskvöld
  • Íslensk fararstjórn
  • Aðgangur að staðbundnum sérfræðingum okkar í Marrakech

bóka ferð


Myndagallerý