
Château de Taulane
Suður Frakkland – Nice – Provence
Hafðu samband og við setjum saman sérsniðið tilboð fyrir þína næstu golfferð.
Verðið kemur á óvart.
Fyrir frekari upplýsingar eða bókanir hafið samband í síma 552-2018 eða á info@tasport.is
Château de Taulane
Suður Frakkland – Nice – Provence
Ef þú ert að leita að áfangastað þar sem fyrsta flokks golf, stórbrotin náttúra og afslappandi lúxus fara saman, þá er Château de Taulane einstakur kostur. Í hjarta Provence, umvafið 340 hekturum af fallegri náttúru, stendur þetta glæsilega herrasetur frá 18. öld sem býður upp á notalega gistingu, persónulega þjónustu og einstaka upplifun fyrir kylfinga jafnt sem þá sem vilja njóta lífsins í rólegu umhverfi.
Golf á heimsmælikvarða
Golfvöllurinn á Château de Taulane var hannaður af golfgoðsögninni Gary Player og er talinn einn af fallegustu og bestu golfvöllum Frakklands. Völlurinn liggur um stórbrotið landslag með fjallasýn, skógum og opnum svæðum sem gera hverja holu að upplifun.
Vellíðan og slökun
Eftir golfhringinn er tilvalið að heimsækja heilsulind hótelsins þar sem gestir geta notið innisundlaugar, gufubaðs, tyrknesks baðs og nuddpotts í friðsælu umhverfi.
Frönsk matargerð og einstakt umhverfi
Á Trattoria da Mario veitingastaðnum er boðið upp á ljúffenga rétti úr fersku frönsku hráefni á meðan notið er stórkostlegs útsýnis yfir golfvöllinn og nærliggjandi fjöll.
Innifalið – flug með Icelandair – Nice
Flug með töskum
Glæsileg gisting á herrasetri
Hótelið býður upp á 29 falleg herbergi og svítur þar sem sögulegur sjarmi og nútímaleg þægindi mynda fullkomna umgjörð fyrir afslappandi golfdvöl. Château de Taulane er kjörinn áfangastaður fyrir þá sem vilja sameina golf, slökun, góða matargerð og ógleymanlega upplifun í suðurhluta Frakklands.
Við hjá TA-Sport Travel aðstoðum þig við að skipuleggja ferðina frá upphafi til enda, hvort sem um er að ræða einstaklingsferð, vinahóp eða golfklúbb. Château de Taulane er c.a. 80.mín frá flugvellinum í Nice