
14. – 17. Maí 2027
Hafið samband í síma 552-2018 eða sendið okkur póst á info@tasport.is til að fá tilboð.
Mikel Arteta tókst loks að leiða Arsenal til sigurs í Premier League á síðustu leiktíð eftir að liðið hafði hafnað í 2. sætinu næstu þrjár leiktíðir þar á undan. Að óbreyttu eru góðar líkur á að Arsenal verji titilinn. Liðið er ógnarsterkt og byggir öðru fremur á öguðum varnarleik og vel útfærðum föstum leiktriðum. Þessir þættir tryggðu sæti í úrslitum Champions League, þar sem Arsenal tapaði í vítaspyrnukeppni gegn PSG. Arteta vill meira – svo mikið er víst.
Heimavöllur Arsenal, Emirates, tekur 60.700 áhorfendur og hefur reynst aðkomuliðum mikil gryfja undanfarin ár.
Arsenal hefur unnið enska meistaratitilinn 14 sinnum og FA Cup 14 sinnum, oftar en nokkurt enskt lið. Deildabikarinn (League Cup/EFL Cup og nú Carabao Cup) hefur Arsenal tvívegis unnið.
Hvernig á að bóka?
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
Kef-London
London-Kef
President Hotel 3* – Notalegt og vel staðsett hótel í London
President Hotel er þægilegt og vel staðsett 3* hótel í hjarta London, rétt við Russell Square. Þetta hótel er fullkominn kostur fyrir þá sem vilja dvelja á hagkvæmu og vinalegu hóteli með frábæra staðsetningu í göngufæri frá mörgum af helstu kennileitum borgarinnar.
Staðsetning
Hótelið er staðsett í Bloomsbury-hverfinu, sem er þekkt fyrir fallega arkitektúr og nálægð við menningar- og verslunarsvæði. Aðeins nokkurra mínútna ganga er í Russell Square neðanjarðarlestarstöðina, sem gerir gestum kleift að ferðast auðveldlega um London.
Helstu kennileiti í nágrenninu:
