Síðumúla 25 108 Reykjavík Sími 552-2018 info@tasport.is (29)
Chelsea - Leeds
Bretland
London
4

Chelsea  – Leeds

20. -23. Nóvember 2026

Hafið samband í síma 552-2018 eða sendið okkur póst á info@tasport.is til að fá tilboð.

Chelsea – Leeds

Reksturinn á Chelsea undanfarin ár hefur verið eins og hálfgerður sirkus. Stjórar hafa komið og farið og leikmenn hafa verið keyptir og seldir eins og á stórum vörulager. Árangurinn eftir því. Með óvæntri ráðningu Xabi Alonso sl. vor má telja fullvíst að jafnvægi komst á hlutina. Alonso er grjótharður og á vafalítið eftir að ná mun meiru út úr hópnum en tekist hefur fram að þessu. Chelsea er með fullt af fínum leikmönnum en liðsandinn hefur verið úti á túni. Það þarf að breytast.

Heimavöllur Chelsea er Stamford Bridge og tekur 40.300 áhorfendur en áform eru uppi um að stækka hann um a.m.k. 15.000 sæti.

Chelsea hefur unnið enska meistaratitilinn sex sinnum, fimm þeirra á árunum 2005 til 2017. FA Cup hefur Chelsea unnið átta sinnum og liðið hefur hampað deildabikarnum (League Cup/EFL Cup og nú Carabao Cup) fimm sinnum.

Hvernig á að bóka?

  • Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x 1
  • Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x 2
  • Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x 2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x 1

 

Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir

  • Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
  • Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
  • Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
  • Ferðagögn eru send 7-10 dögum fyrir brottför.

bóka ferð

Myndagallerý