banner
Heilsu- og upplifunarferð til Kanarí
Sérferðir
Kanarý
4

Heilsu- og upplifunarferð til Kanarí með Kvennastyrk ☀️

Tilbúin/n að brjóta upp veturinn? 
Komdu með okkur til Kanarí 5.–12. febrúar og njóttu viku þar sem sól, hreyfing, afslöppun og góður félagsskapur fara saman.
 
Öll eru velkomin – hvort sem þú þekkir Kvennastyrk vel eða ert að heyra af okkur í fyrsta skipti. 💜
Takmarkaður fjöldi sæta er í boði.

 

Algengar spurningar​

Má ég koma ein? Já. Margar gera það og það er alltaf auðvelt að kynnast öðrum.

Þarf ég að mæta í allar æfingarnar? Nei, æfingarnar eru valkvæðar.

Má makinn koma með? Já. Makar, vinkonur og aðrir sem þér finnst gaman að ferðast með eru hjartanlega velkomnir.

 

Verð

Price range: 298.800 kr. through 384.800 kr.

Heilsu- og upplifunarferð til Kanarí með Kvennastyrk ☀️

5.–12. febrúar 2027

Brjótum upp á veturinn saman 🌴
Langar þig að skipta út íslenska skammdeginu fyrir sól, hreyfingu, afslöppun og góðan félagsskap? 5.–12. febrúar 2027 förum við til Kanarí í heilsu- og upplifunarferð þar sem markmiðið er einfalt: að njóta vikunnar, hlaða batteríin og hafa gaman.

 

Ferðin er opin öllum – þú þarft ekki að vera meðlimur í Kvennastyrk til að koma með.
Þú getur komið ein/einn, með vinkonu, vini, maka eða ferðafélaga. Hópurinn er fjölbreyttur og þú ræður sjálf/ur hvernig þú nýtir ferðina.

Æfingarnar
Morgunæfingarnar eru fyrir öll sem vilja taka þátt og hægt er að aðlaga þær eftir getu.
Þær eru valkvæðar – þetta er frí, ekki æfingabúðir. En við mælum að sjálfsögðu með æfingunum, enda fáar leiðir betri til að byrja daginn.
Þú ræður hvort þú mætir einu sinni, nokkrum sinnum eða alla morgna.
Hvernig lítur vikan út?
Við bjóðum upp á morgunæfingar alla daga nema ferðadagana á útisvæði við hótelið og eftir það tekur dagurinn við.
 
Þú ræður ferðinni þinni.
  • Slakaðu á við sundlaugina
  • Taktu þátt í morgunæfingu
  • Farðu í göngutúr eða skoðaðu eyjuna
  • Njóttu matarins og samverunnar
  • Eyddu deginum nákvæmlega eins og þig langar
Það er engin pressa á að fylgja ákveðinni dagskrá og nóg af frjálsum tíma.

Ferðin gæti hentað þér ef þig langar að:
✓ Brjóta upp veturinn með viku í sólinni
✓ Sameina frí og hreyfingu án pressu
✓ Ferðast með skemmtilegum hópi
✓ Hafa bæði samveru og tíma fyrir þig
✓ Koma ein/einn eða ferðast með einhverjum sem þér þykir gaman að vera með

Þú þarft hvorki að vera í Kvennastyrk né hafa æft hjá okkur áður.


Þjálfarar:

Halldóra Anna Hagalín – Kvennastyrkur

Viðar Bjarnason – Kvennastyrkur

 

Frekari upplýsingar í síma 552-2018 eða info@tasport.is

bóka ferð


Myndagallerý