Verð frá 375.800 kr. á mann í tvíbýli
375.800 kr.
Í tilefni af 10 ára afmæli TA Sport ætlum við að loka árinu með stæl – með glæsilegri áramótaferð til Marrakech í Norður-Afríku! Við munum dvelja á nýuppgerðu Pickalbatros hótelinu, þar sem aðbúnaður er til fyrirmyndar og þriðja sundlaugin er nú að bætast við. Í bakgarðinum er glæsilegur golfvöllur þar sem gestir okkar geta leikið sér frá morgni til kvölds. Við höfum áður farið með stóran hóp til Pickalbatros um áramótin og fengum frábærar viðtökur – enda veðursældin ótrúleg á þessum tíma árs.
Marrakech er einn heitasti áfangastaður Evrópubúa yfir áramótin – framandi en samt aðgengilegur og einstaklega menningarlegur staður til að upplifa nýtt ár.
Takmarkað sætisframboð – hafðu samband og tryggðu þér sæti í árótsferðina sem enginn vill missa af!
Innifalið er
Í boði gegn gjaldi eru spennandi afþreyingar s.s.:
28. desember: Keflavík – Marrakech
5. janúar: Marrakech – Keflavík
Glæsilegt fimm stjörnu lúxus hótel með einstaka staðsetningu og útsýni yfir einn eftirsóttasta golfvöll Marrarkech.
Hótel Pickalbatros er staðurinn til að slaka á og njóta fimm stjörnu lúxus og heimsklassa aðstöðu. Þetta einstaka hótel er staðsett í hjarta hins töfrandi Palmeraie, staðsett í norðurhluta borgarinnar. Hótelið er þekkt fyrir nútímalegan marokkóskan arkitektúr og hlýlegan stíl til að skapa notalegt og afslappað andrúmsloft.
Stórkostlegt útsýni er yfir brautirnar við klúbbhúsið og hinn töfrandi bakgrunn Atlas fjalla eru hluti af þessari einstöku upplifun. Meðalhitastig á þessum árstíma er 22 gráður