Síðumúla 25 108 Reykjavík Sími 552-2018 info@tasport.is (31)
Arsenal - Nottingham Forest
Bretland
London
4

Arsenal – Nottingham Forest

14. – 17. Maí 2027

Hafið samband í síma 552-2018 eða sendið okkur póst á info@tasport.is til að fá tilboð.

Arsenal – Nottingham Forest

Mikel Arteta tókst loks að leiða Arsenal til sigurs í Premier League á síðustu leiktíð eftir að liðið hafði hafnað í 2. sætinu næstu þrjár leiktíðir þar á undan. Að óbreyttu eru góðar líkur á að Arsenal verji titilinn. Liðið er ógnarsterkt og byggir öðru fremur á öguðum varnarleik og vel útfærðum föstum leiktriðum. Þessir þættir tryggðu sæti í úrslitum Champions League, þar sem Arsenal tapaði í vítaspyrnukeppni gegn PSG. Arteta vill meira – svo mikið er víst.

Heimavöllur Arsenal, Emirates, tekur 60.700 áhorfendur og hefur reynst aðkomuliðum mikil gryfja undanfarin ár.

Arsenal hefur unnið enska meistaratitilinn 14 sinnum og FA Cup 14 sinnum, oftar en nokkurt enskt lið. Deildabikarinn (League Cup/EFL Cup og nú Carabao Cup) hefur Arsenal tvívegis unnið.

Hvernig á að bóka?

  • Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x 1
  • Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x 2
  • Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x 2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x 1

Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir

  • Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
  • Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
  • Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
  • Ferðagögn eru send 7-10 dögum fyrir brottför

 

bóka ferð

Myndagallerý