Lýsing
Barcelona Football Cup 10 - 17. apríl
Þessi ferð býður uppá frábæra samsetningu af sumarfríi, fótbolta og sól.

Mótið
Barcelona Football Cup er alþjóðlegt fótboltamót fyrir stráka í 3., 4. og 5. aldursflokki. Mótið er haldið suður af Barcelona við lítinn strandbæ sem nefnist Salou (Tarragona) og er í um rúma klukkustund frá Barcelona. Leiknir eru minnst 5 leikir á lið og er leiktíminn 2×20 mínútur.

Cambrils Park
Möguleikarnir á gistingu eru fjölmargir en helst ber að nefna Cambrils Park sem er glæsileg 4* íbúðargisting eða 4 saman í Bungalow. Fjölbreytt afþreying er inná svæðinu t.d körfuboltavellir, minigolf, strandblak, paddel, götufótboltavöllur og nokkrar sundlaugar. Cambrils Park er í 900 metra fjarðlægð frá Futbol Salou sem er æfinga- og mótssvæðið.

Futbol Salou
Virkilega flott fótboltasvæði sem er með 5 grasvelli og 7 gervigrasvelli, allur búnaður fyrir æfingar er á svæðinu t.d boltar, vesti, keilur ofl. Það er einnig mikil kostur að allir leikir á mótinu fara fram á þessu svæði þar sem vellirnir eru allir hlið við hlið. Glæsileg aðstaða sem hefur fengið viðurkenningu sem eitt
besta æfingasvæðið í Evrópu.

Dæmi um viku ferð
- Flogið út á mánudegi
- Æfingar á þriðju-, miðviku-, fimmtu- og
föstudegi. (komið afþreyingu fyrir eftir eina af æfingunum.) - Laugardagur og sunnudagur eru mótsdagar.
- Farið í skoðunarferð á Camp Nou og
verslunarmiðstöð á brottfarardegi.

Mótspakki
- Flug KEF – BCN – KEF
- Allur akstur
- 20kg. taska 10kg. handfarangur.
- Gisting á Cambrils Park
- Fullt fæði
- 4x æfingar á Futbol Salou.
- Vatn á æfingum
- PortAventura/Aquopolis.
- Camp Nou skoðunarferð.
- Mótsgjald.

Afþreying á svæðinu
- PortAventura
- Ferrari Land
- Vatnagarðar
- GoKart
- Ströndin
- Camp Nou
- Verslunarmiðstöð
Við sérsníðum pakka eftir ykkar þörfum og bjóðum einnig uppá foreldrapakka
Frekari upplýsingar og tilboð info@tasport.is eða síma 552-2018