Lýsing
BARCELONA GIRLS CUP
10. – 11. júní 2023

Mótið
Barcelona Girls Cup er alþjóðlegt fótboltamót fyrir stelpur í 3. og 4. aldursflokki. Mótið er haldið suður af Barcelona við lítinn strandbæ sem nefnist Salou (Tarragona) sem er tæpum 100 km. frá Barcelona. Mótið er viðurkennt af Katalóníska knattspyrnusambandinu og spænska knattspyrnusambandinu.

Gisting
3* hótelgisting sem er vel staðsett nálægt strönd og öðru. Innifalið er fullt fæði og möguleiki á að vera allt að 4 saman í herbergi. Mótið raðar liðum niður á hótel og notast yfirleitt við Best Hotel keðjuna.

Futbol Salou
Virkilega flott fótboltasvæði sem er með 5 grasvelli og 7 gervigrasvelli, allur búnaður fyrir æfingar er á svæðinu t.d boltar, vesti, keilur ofl. Það er einnig mikill kostur að allir leikir á mótinu fara fram á þessu svæði þar sem vellirnir eru allir hlið við hlið. Glæsileg aðstaða sem hefur fengið viðurkenningu sem eitt besta æfingasvæðið í Evrópu.

Dæmi um viku
- Flogið út á mánudegi
- Æfingar á þriðju-, miðviku-, fimmtu- og
föstudegi (komið afþreyingu fyrir eftir eina af æfingunum). - Laugardagur og sunnudagur eru mótsdagar.
- Farið í skoðunarferð á Camp Nou og
verslunarmiðstöð á brottfarardegi.

Mótspakki
- Flug KEF – BCN – KEF
- Allur akstur.
- 20kg. taska 10kg. handfarangur.
- Gisting á Cambrils Park.
- Fullt fæði.
- 4x æfingar á Futbol Salou.
- Vatn á æfingum.
- PortAventura/Aqualand.
- Camp Nou skoðunarferð.
- Mótsgjald.

Afþreying á svæðinu
- PortAventura
- Ferrari Land
- Vatnagarðar
- GoKart
- Ströndin
- Camp Nou
- Verslunarmiðstöð
Við sérsníðum pakka eftir ykkar þörfum og bjóðum einnig uppá foreldrapakka
Frekari upplýsingar og tilboð info@tasport.is eða síma 552-2018