Old,Town,And,Port,Of,Riva,Del,Garda,At,The
Ca' degli Ulivi Gardavatn
Golfferð
Ítalía
5

Ca’ degli Ulivi Gardavatn 25.september til 6.október 2026 (Uppselt)

Dagsetningar vor 2027
5-12.maí
12-21.maí

Frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 552-2018 eða info@tasport.is

Verð

Price range: 309.800 kr. through 409.800 kr.

Ca’ degli Ulivi – Gardavatnið

Eitt af fallegri golf svæðum Evrópu, staðsett við Gardavatnið , í héraði sem kallast Marciaga di Costermano. Ólífutrén, sem gefa klúbbnum nafn sitt, eru einkennandi plöntur þessa svæðis. Sérstök umhyggja hefur verið lögð í ræktun þeirra, hvert sem litið er þá erum við umlukinn Ólífutrjám og fallegri náttúru. Golfvöllurinn er staðsettur í himneskri náttúru með stórkostlegu útsýni yfir Garda, ólífulundir, eikarskóga, aldingarða, víngarða, þarna grípur maður andann á lofti. Milt loftslag Gardavatns gerir þér kleift að spila golf flesta daga ársins. Á hlýrri mánuðum þakkar maður fyrir léttri golu sem er nauðsynleg á stað sem þessum.

Á staðnum er golf akademía við völlinn með æfingasvæði og púttvelli, einnig kerru –  og golfbílaleiga, töskugeymsla, búningsklefar, bar og veitingastaður að ógleymdri golfverslun. Á golfsvæðinu er einn 18 holu keppnisvöllur og annar 9 holu golfvöllur sem er í einkaeigu hótelsins sem gestir geta spilað

18 holu keppnisvöllur 

Keppnisvöllurinn var hannaður af breska golf fyrirtækinu Cotton Penninck & Partners.

Hönnun og skipulag vallarins telst krefjandi fyrir lengra komna, en líka skemmtilegur fyrir byrjendur í golfi. Teigar eru við alla hæfi.

Gisting
Infinitum og Terrace
herbergin eru merktar upp sem svítur og eru vinsælustu herbergin á hótelinu. Infinitum herbergin eru með laug beint út frá herbergi meðan sameiginleg sundlaug er fyrir Terrace herbergin. Standard herbergin eru um 20fm meðan Infinitum og Terrace eru um 40fm.

bóka ferð


Myndagallerý