
30. Október -1. Nóvember 2026
Hafið samband í síma 552-2018 eða sendið okkur póst á info@tasport.is til að fá tilboð.
Reksturinn á Chelsea undanfarin ár hefur verið eins og hálfgerður sirkus. Stjórar hafa komið og farið og leikmenn hafa verið keyptir og seldir eins og á stórum vörulager. Árangurinn eftir því. Með óvæntri ráðningu Xabi Alonso sl. vor má telja fullvíst að jafnvægi komst á hlutina. Alonso er grjótharður og á vafalítið eftir að ná mun meiru út úr hópnum en tekist hefur fram að þessu. Chelsea er með fullt af fínum leikmönnum en liðsandinn hefur verið úti á túni. Það þarf að breytast.
Heimavöllur Chelsea er Stamford Bridge og tekur 40.300 áhorfendur en áform eru uppi um að stækka hann um a.m.k. 15.000 sæti.
Chelsea hefur unnið enska meistaratitilinn sex sinnum, fimm þeirra á árunum 2005 til 2017. FA Cup hefur Chelsea unnið átta sinnum og liðið hefur hampað deildabikarnum (League Cup/EFL Cup og nú Carabao Cup) fimm sinnum.
Hvernig á að bóka?
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
Kef-London
London-Kef
President Hotel 3* – Notalegt og vel staðsett hótel í London
President Hotel er þægilegt og vel staðsett 3* hótel í hjarta London, rétt við Russell Square. Þetta hótel er fullkominn kostur fyrir þá sem vilja dvelja á hagkvæmu og vinalegu hóteli með frábæra staðsetningu í göngufæri frá mörgum af helstu kennileitum borgarinnar.
Staðsetning
Hótelið er staðsett í Bloomsbury-hverfinu, sem er þekkt fyrir fallega arkitektúr og nálægð við menningar- og verslunarsvæði. Aðeins nokkurra mínútna ganga er í Russell Square neðanjarðarlestarstöðina, sem gerir gestum kleift að ferðast auðveldlega um London.
Helstu kennileiti í nágrenninu:
