
Sveitasæla, saga og vínekrur
Fimm nátta ferð til náttúruperlunnar Dorset á Suður-Englandi
1. september – 6. september 2027
Verð frá 347.800 kr á mann m.v. saman í herbergi.
Sérstakt Moggaklúbbsverð: 297.800 kr* á mann m.v. 2 saman í herbergi.
*Miðað við að bókað sé fyrir 20. október 2026.
Allar nánari upplýsingar um ferðina veitir fararstjóri, siggi@tasport.is eða í síma 8997422.
297.800 kr. – 397.800 kr.Price range: 297.800 kr. through 397.800 kr.
Premierferðir og TA Sport Travel bjóða nú í fyrsta sinn fimm nátta ferð um Dorset, eina af perlum enskrar sveitasælu dagana 1. – 6. September 2027. Þar kallast á heillandi saga, gróðursæl náttúra, hvítar klettastrendur og lítil þorp þar sem tíminn hefur staðið í stað í hundruð ára.
Í ferðinni siglum við m.a. frá Poole meðfram hvítri Jurassic Coast-klettaströndinni til Swanage. Þaðan förum við með gufulest til smáþorpsins Corfe Castle, sem er við rætur samnefnds sögufrægs kastala. Við skoðum hefðarsetrið Kingston Lacy, sem er lyginni líkast og heimsækjum vínbúgarðinn English Oak, sem framleiðir margverðlaunuð vín.
Við förum einnig í sögugöngu um Dorchester, sem á rætur að rekja allt aftur til tíma Rómverja og kynnum okkur sögu Poundbury, sem er módel-þorp byggt eftir hugmyndafræði Karls Bretakonungs. Í ferðinni heimsækjum við elsta brugghús Dorset, Hall & Woodhouse, sem á 250 ára afmæli á næsta ári. Við skoðum Highcliffe Castle og förum svo í Sunday roast á fallegum sveitapöbb, St. Peters Finger í Lytchett Minster. Lokum svo ferðinni með bingói, þar sem verðlaun eru m.a. ferðavinningar.
Allar nánari upplýsingar um ferðina veitir fararstjóri, siggi@tasport.is eða í síma 8997422.
KEF – GATWICK – KEF
1. september
6. september
The Duchess of Cornwall Inn í Poundbury****
Gisting í 5 nætur með morgunverði og 2ja rétta kvöldverði á The Duchess of Cornwall Inn í Poundbury, þar sem öll herbergi eru loftkæld.
The Duchess of Cornwall Inn er nýlegt hótel í hjarta Poundbury, þar sem öll herbergi eru innréttuð í gömlum stíl. Á jarðhæð hótelsins er skemmtilegur pöbb/veitingastaður.
Flug með Icelandair til London Gatwick ásamt fullri farangursheimild.
Gisting í 5 nætur með morgunverði og 2ja rétta kvöldverði á The Duchess of Cornwall Inn í Poundbury, þar sem öll herbergi eru loftkæld.
Allur aðgangseyrir, þar sem hans er krafist og Sunday roast á sunnudeginum.
Loftkæld rúta fylgir hópnum allan tímann.
Fararstjóri er Sigurður Sverrisson, sem búsettur er í Dorset.
*Gistináttaskattur er ekki innifalinn.