Empordá Golf (Golfskóli)

Flokkur:

Lýsing

Lýsing

Empordá Golf

Frábært golfsvæði við strendur Costa Brava sem býður upp á tvo 18 holu golfvelli, links og skógarvöll. Staðsett um 1 klst og 40 mín frá flugvellinum í Barcelona. Emporda Golf hefur verið valinn einn af 10 bestu á Spáni og er viðurkenndur af hinni virtu „Peugeot guide“ sem einn af 1000 bestu golfvöllum heimsins. Bandaríska tímaritið „Golf World“ telur okkur vera eitt besta svæðið á Spáni, auk þess að vera 3. besta á Norður-Spáni. Fallegt og rólegt umhverfi heillar marga við Empordá svæðið en fyrir þá sem vilja þá ekki langt í úrval veitingastaða og meira líf í Girona sem er í 30 mínútna aksturfjarlægð. Svæðið fór í gegnum miklar breytingar árið 2020-21 og hefur hótelið og klúbbhúsið verið endurnýjað einnig var komið fyrir saltvatns útisundlaug.


Girona

Borgin hefur mikla sögu og er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Meðal annars má nefna sögulegar kirkjur, falleg fljót og mörg söfn sem hægt er að skoða í borginni. Úrval veitingastaða er mjög fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.


Play De Aro

Ef gestir vilja komast í búðir eða næturlíf þá er Play De Aro í 20 mín aksturfjarlægð og hefur svæðið úrval búða og er opið alla daga vikunar.

L’Estartit / Torroella / Palafrugell / Palamós

Þessir bæir eru í 10-20 mínútna fjarlægð frá Hótelinu með leigubíl. Hægt er að finna bæði bari og góða veitingarstaði þar. Mælum við sérstaklega með Gelatone Giardinetto ítalskur veitingarstaður í L’Estartit.

Hótel

Hotel Empordá Golf ****

Staðsett á milli golfvallana og alveg við klúbbhúsið með fallegu útsýni yfir næsta nágreni.  Byggt árið 2006 en hótelið var svo endurnýjað ásamt klúbbhúsinu árið 2020-21. Á golfsvæðinu eru tveir veitingastaðir einn inn á hótelinu og svo í klúbbhúsinu. Öll herbergin eru rúmgóð og með fallegu útsýni yfir golfsvæðið. Aðstaða á hótelinu er mjög góð en þar er að finna Spa og líkamsrækt sem er innifalin fyrir gesti og í hótelgarðinu er svo útisvæði með bekkjum og sundlaug.

ATH. Spa og líkamsræktar aðstaðan hefur ekki verin opin í covid. Eigendurnir hafa nýtt tíman til að taka þessi svæði í gegn og verður þetta því ekki í boði fyrir gesti núna í vor.

Það kostar aukalega 10€ per nótt per herbergi að fá útsýni sem snýr 1.teigum golfvallana.

Empordá Golf (Golfskóli)
Empordá Golf (Golfskóli)
Empordá Golf (Golfskóli)
Veitingastaðir

Enterchamps

Staðsettur í klúbbhúsinu er með einstaklega afslappað andrúmsloft og fjölbreyttan matseðil með árstíðabundnum áherslum.

Yfirkokkurinn Enric Vergara sérhæfir sig í kolgrilluðum réttum og kemur með viðarkolabragð í hvern rétt, allt frá kjöti og fiski til eftirrétta. Hver réttur er útbúinn með afurðum úr héraðinu, eins og kolgrilluðu „Xuixos“ frá Parlavà eða kálfakjötinu frá La Cerdanya.

Terrafonda

Flexi-vegan matargerðarlist er frumraun á Costa Brava með Terrafonda veitingastaðnum staðsettur á hótelinu. Hollt, bragðgott og kemur á óvart. Matseðill með meira fjöldan allan af dýrindis réttum, miðar að því að stuðla að hollara, meðvitaðra og umhverfisvænni mataræði.

Réttirnir á Terrafonda innihalda hvorki kjöt né fisk, með áherslu á algjörlega vegan rétti með nokkrum undantekningum með hráefni eins og mjólk, osti eða eggjum.

Empordá Golf (Golfskóli)
Empordá Golf (Golfskóli)
Empordá Golf (Golfskóli)
Golfvellir
Empordá Golf (Golfskóli)

Empordà Links

Minnir á marga strandvelli í Bretlandi og Írlandi, sveiflast á milli sandalda, stöðuvatna og vel staðsettar stórar glompur. Völlurinn er 5.971 metrar af gulum teigum, krefjandi golfvöllur sem krefst hugmyndaflugs og sköpunargáfu til að skora vel. Það er einnig vert að nefna að það er mismunandi upplifun að spila Links völlinn fyrir og eftir hádegi þar sem hafgolan getur haft skemmtileg áhrif eftir hádegi.

Empordá Golf (Golfskóli)

Empordá Forest

Öfugt við Empordà Links, vindur Empordà Forest sig í gegnum hefðbundinn Miðjarðarhafsfuruskóg sem býður upp á kærkomna vernd þegar vindur er uppi. Spilarar verða að sigla í gegnum röð veltandi brauta sem hafa verið skornar í gegnum trén, en varast víðáttumiklu vötnin á nokkrum brautum. Þrátt fyrir mikið af trjám þá týnast fáir boltar í þeim og yfirleit hægt að slá sig aftur í leik ef kylfingar lenda í að hitta ekki höggið sitt eins og þeir ætluðu sér. Völlurinn er 5866 metrar af gulum teigum.

Golfskóli
Golfskóli TA Sport

Dagsetningar í boði 14 – 21.apríl og 24 – 1.maí.

6 daga kennsla á öllum þáttum leiksins þar sem farið verður vandlega yfir grunnatriði golfsveiflunnar, grip, stöðu, kylfuval, teighögg, brautarhögg, vipp og pútt.

Golfreglunum ásamt framkomu á golfvellinum og hvernig forgjöf er reiknuð verða gerð sérstök skil.

PGA golfkennarinn Snorri Páll Ólafsson mun sjá til þess að nemendur finni fyrir auknu sjálfstrausti og allmennri kunnáttu. Við munum bæta við gestakennurum eftir fjölda nemenda hverju sinni.

Kennt verður alla morgna á milli klukkan 9 til 12.

Skólinn hentar sérlega vel fyrir byrjendur sem og háforgjafa kylfinga.

Golfskólinn er kjörin leið til að kunna bera sig að við hin ýmsu högg og auka við sjálfstraustið út á velli.

Opin námskeið verða einnig í boði eftir hádegi suma daga. Námskeiðin henta öllum kylfingum sem vilja vinna sig í átt að betra skori. Aðgangur er gegn aukagjaldi.

ATH Golfskólinn kostar kr. 28.000 á mann.

Innifalið

Innifalið

  • Flug, skattar og gjöld Keflavík – Barcelona – Keflavík.
  • Flutningur á 20kg. golfsetti, 20 kg. innrituð taska og 10 kg. handfarangur.
  • Akstur frá flugvelli á hótel og til baka við brottför.
  • 4* gisting
  • Hálft fæði
  • Ótakmarkað golf. (Ekki á komu og brottfarardegi)
  • 150 Æfingaboltar á dag.
  • Golfbíll fyrstu 18 holurnar á dag.

Gistináttaskattur ekki innifalinn.

Frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 552-2018 eða info@tasport.is

Auglýsing

Skoðunarferðir - afþreying - upplifun

Smelltu hér - Visit Spain

Skoðaðu úrvalið

Visit Spain

Vínsmökkun

Visit Spain

Hjólaferðir

Visit Spain

Fiskveiðar

Visit Spain

Skemmtun

Visit Spain

Næturlífið

Visit Spain