
Heilsu- og upplifunarferð til Kanarí með Kvennastyrk ☀️
Algengar spurningar
Má ég koma ein? Já. Margar gera það og það er alltaf auðvelt að kynnast öðrum.
Þarf ég að mæta í allar æfingarnar? Nei, æfingarnar eru valkvæðar.
Má makinn koma með? Já. Makar, vinkonur og aðrir sem þér finnst gaman að ferðast með eru hjartanlega velkomnir.
298.800 kr. – 384.800 kr.Price range: 298.800 kr. through 384.800 kr.
Heilsu- og upplifunarferð til Kanarí með Kvennastyrk ☀️
5.–12. febrúar 2027
Brjótum upp á veturinn saman 🌴
Langar þig að skipta út íslenska skammdeginu fyrir sól, hreyfingu, afslöppun og góðan félagsskap? 5.–12. febrúar 2027 förum við til Kanarí í heilsu- og upplifunarferð þar sem markmiðið er einfalt: að njóta vikunnar, hlaða batteríin og hafa gaman.
Ferðin er opin öllum – þú þarft ekki að vera meðlimur í Kvennastyrk til að koma með.
Þú getur komið ein/einn, með vinkonu, vini, maka eða ferðafélaga. Hópurinn er fjölbreyttur og þú ræður sjálf/ur hvernig þú nýtir ferðina.
Ferðin gæti hentað þér ef þig langar að:
✓ Brjóta upp veturinn með viku í sólinni
✓ Sameina frí og hreyfingu án pressu
✓ Ferðast með skemmtilegum hópi
✓ Hafa bæði samveru og tíma fyrir þig
✓ Koma ein/einn eða ferðast með einhverjum sem þér þykir gaman að vera með
Þjálfarar:
Halldóra Anna Hagalín – Kvennastyrkur
Viðar Bjarnason – Kvennastyrkur
Frekari upplýsingar í síma 552-2018 eða info@tasport.is
Icelandair
KEF – Kanarí 5. febrúar 2027
Icelandair
Kanarí- KEF 12. febrúar 2027
Gist verður á fjögurra stjörnu hóteli (sama hótelið þriðja árið í röð) í 7 nætur með fæði inniföldu, morgunverði, kvöldverði og hádegisverði þar á milli ásamt einum drykk með hverri máltíð.
Hótelið okkar: Hotel Duna Golf Suites
Verð í tvíbýli kr. 298.800,-
Verð í einbýli kr. 384.800,-
Innifalið
Við byrjum alla daga á góðri æfingu á útisvæði á hótelinu sjálfu og skellum okkur þaðan í laugina. Svo er bara fullt af frjálsum tíma þar sem fólk hefur gjarnan hópað sig saman og nýtt daginn í að skoða eitthvað skemmtilegt, rölta um eða bara slakað á hótelbakkanum.
Æfingarnar eru auðvitað valkvæðar og hægt að á mæta alla daga eða stundum. Þú ræður alltaf sjálf hversu mikið þú tekur þátt!
Innifalið í verði er svo skemmtidagur einn daginn þar sem við förum í skoðunarferð á vínbúgarð og heimsækjum vínekruna og víngerðina. Eftir það ætlum við að borða kvöldverð á staðnum. Hægt er að skoða vínbúgarðinn hér: https://bodegonvandama.com/restaurante/