
30. – 2. nóv 2026
Verð frá kr. 224.800 á mann í tvíbýli
Hafið samband við TA Sport Travel fyrir frekari upplýsingar í síma 552-2018 eða á info@tasport.is
204.800 kr. – 279.800 kr.Price range: 204.800 kr. through 279.800 kr.
Eftir ótrúlega fyrstu leiktíð Arne Slot, þar sem Liverpool varð meistari, fór allt í skrúfuna hjá félaginu á síðustu leiktíð. Þeirri atburðarás lauk með brottrekstri Slot í lok leiktíðar. Andoni Iraola bíður það verkefni að byggja upp Liverpool-liðið að nýju með allt öðrum áherslum í leikstíl en einkenndu Slot. Enginn efast um hæfni Iraola eftir dvöl hans hjá Bournemouth en ljóst er að Liverpool þarf að styrkja hópinn verulega til að rétta gengið af.
Heimavöllur Liverpool, Anfield, tekur nú 61.000 áhorfendur eftir tvöfalda stækkun á sl. tíu árum. Stemningin á vellinum er óviðjafnanleg þegar best lætur.
Liverpool hefur unnið enska meistaratitilinn 20 sinnum og FA Cup átta sinnum. Þá hefur
Liverpool unnið deildabikarinn (League Cup/EFL Cup og nú Carabao Cup) 10 sinnum.
Að þessu sinni mætir Liverpool liði Arsenal
Hvernig á að bóka?
Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir
30.okt Kef-Manchester
2.nóv Manchester-Kef
Novotel 4* Liverpool Centre er við hliðina á Liverpool ONE-verslunarmiðstöðinni og státar af nútímalegum 4-stjörnu herbergjum.
Liverpool Lime Street-lestarstöðin er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Sögulega Albert Dock-svæðið, þar sem finna má Tate Liverpool-listasafnið og The Beatles Story-safnið, er aðeins í 10 mínútna göngufjarlægð. Miðbæjarverslanir og veitingastaðir Liverpool eru í innan við 5 mínútna göngufjarlægð.
Glæsileg herbergi Novotel eru með sérbaðherbergi, öryggishólf og sjónvarp. Öll herbergin eru einnig með minibar og te-/kaffiaðstöðu.
Veitingastaðurinn Elements framreiðir alþjóðlega rétti en Ropewalks Bar and Lounge býður upp á léttar máltíðir og drykki í líflegu umhverfi með flottum húsgögnum.
