Síðumúla 25 108 Reykjavík Sími 552-2018 info@tasport.is (22)
Liverpool - Tottenham
Bretland
Liverpool
4

Liverpool – Tottenham 25 – 28.apríl 2025

Verð frá kr. 249.800 í tvíbýli

Hafið samband við TA Sport Travel fyrir frekari upplýsingar í síma 552-2018 eða á info@tasport.is

Liverpool – Tottenham

Það kemur í hlut Hollendingsins Arne Slot að feta í fótspor Jürgen Klopp, sem kvaddi Anfield í vor eftir tæplega 9 ára dvöl. Ekki aðeins er það áskorun fyrir Slot að viðhalda gengi liðsins, heldur bíður hans sú áskorun að heilla stuðningsmenn eins og Klopp. Góð byrjun Liverpool er lykill að framtíð Slot á Anfield.

Heimavöllur Liverpool, Anfield, tekur nú 61.000 áhorfendur eftir tvöfalda stækkun á sl. 8 árum. Stemningin á vellinum er óviðjafnanleg þegar best lætur.

Liverpool hefur unnið enska meistaratitilinn 19 sinnum og FA Cup 8 sinnum. Þá hefur Liverpool unnið deildabikarinn (League Cup/EFL Cup og nú Carabao Cup) 10 sinnum, nú seinast á síðustu leiktíð.

Að þessu sinni mætir Liverpool liði Tottenham.

Dæmi um útsýnið úr sætunum okkar á Anfield. Kop á vinstri hönd.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvernig á að bóka?

  • Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x 1
  • Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x 2
  • Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x 2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x 1
  • Athugið að herbergi á Novotel í Liverpool eru fremur lítil og rúma ekki meira en 3 með góðu móti. Tvíbreitt rúm er í Double-herbergjum. Uppbúinn svefnsófi er að auki ef um er að ræða Twin eða 3ja manna herbergi. Þriðji gestur verður að vera barn 15 ára eða yngra.

Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir

  • Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
  • Staðfestingargjald í ferðir hjá okkur er almennt 40 þús. krónur á hvern farþega en getur í undantekningatilvikum verið hærra.
  • Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
  • Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.

bóka ferð

Myndagallerý

Hafa samband