LÝSING
Mare Nostrum Cup er alþjóðlegt fótboltamót fyrir drengi og stúlkur í 4 og 3 flokki. Mótið er haldið suður af Barcelona við lítinn strandbæ sem nefnist Salou (Tarragona) sem er tæpum 100 km. frá Barcelona.
Mótsvæðið:
Futbol Salou virkilega flott fótboltasvæði sem er með 5 grasvelli og 7 gervigrasvelli, allur búnaður fyrir æfingar er á svæðinu t.d boltar, vesti, keilur ofl. Einnig er spilað á öðrum völlum á svæðinu og er allur akstur til og frá valla innifalinn.
Æfingarsvæði:
Futbol Salou með 5 grasvelli og 7 gervigrasvelli, allur búnaður fyrir æfingar er á svæðinu t.d boltar, vesti, keilur ofl. Glæsileg aðstaða sem hefur fengið viðurkenningu sem eitt besta æfingasvæðið í Evrópu.
Dæmi um ferð
- Flogið út á mánudegi
- 3x Æfingar á þri, mið og fimmtudegi. (farið í Portaventura eða Aquopolis eftir æfingu á einum af þessum dögum.)
- Föstudagur – sunnudagur mótsdagar
- Farið í verslunarmiðstöð inní Barcelona á brottfarardegi.
GISTING
3/4* hótelgisting sem er vel staðsett nálægt strönd og öðru. Innifalið er fullt fæði og möguleiki á að vera allt að 4 saman í herbergi. Mótið raðar liðum á hótel.