PGA Catalunya

Flokkur:

Lýsing

PGA Catalunya – Golfsvæði nr. 1 á Spáni

Frábært golfsvæði í hæsta gæðaflokki. Svæðið hefur uppá að bjóða tvo 18 holu golfvelli sem báðir eru par 72. Vellirnir eru hannaðir af Angel Gallardo og Neil Coles. Stadium völlurinn er talinn vera einn af bestu völlum Evrópu og er völlur sem allir golfarar ættu að spila að minnsta kosti einu sinni á lífsleiðinni. Völlurinn var hannaður með það í huga að halda Ryder Cup einn daginn. Glæsilegt klúbbhús með útsýni yfir fyrsta teighögg á Stadium vellinum.

Tilvalið að slaka á og fá sér góðan hádegisverð eftir golfhringinn en veitingastaðurinn fær mjög góða dóma og er  öll þjónusta og matur  fyrsta flokks.

Svæði sem býður upp á mikið meira en bara golf. Í boði eru tvö hótel sem bæði bjóða uppá mikið úrval af afþreyingum fyrir gesti t.d. hjólreiðar, hestaferðir, göngu- og menningaferðir. Einnig er gott úrval veitingastaða á svæðinu.

Girona

Í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá golfsvæðinu er borgin Girona. Borgin hefur mikla sögu og er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Meðal annars má nefna sögulegar kirkjur, falleg fljót og mörg söfn sem hægt er að skoða í borginni. Úrval veitingastaða er mjög fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

PGA Catalunya
PGA Catalunya
PGA Catalunya

Stadium Course

PGA Catalunya

18 holu völlur þar sem tré, vötn og bönkerar gera völlinn mjög krefjandi. Völlurinn er í 1. sæti yfir bestu velli Spánar, par 72  og 6104 metrar af gulum teig. Einnig í boði tee it forward teigar sem eru settir upp svo allir kylfingar óháð forgjöf geti notið sín á vellinum.

Tour Course

PGA Catalunya

Er styttri og örlítið auðveldari en Stadium Course. Hannaður af Ángel Gallardo og Neil Coles með það í huga að völlurinn væri krefjandi og skemmtilegur fyrir byrjendur jafnt sem lengri komna. Völlurinn er par 72 og 5476 metrar af gulum teig. 

Camiral 5*

Glæsilegt fimm stjörnu hótel. Rúmgóð og hlýleg herbergi með frábæru útsýni yfir golfsvæðið og nærliggjandi sveit. Í boði er spa með gufubaði, heitum potti og tyrknesku baði og einnig eru í boði úrval af meðferðum. Góður veitingastaður, píanóbar og krá. Gönguleiðir, hjólaleiga og tennisvöllur er meðal afþreyingar sem hótelið bíður uppá.

LAVA 3*

Flott og snyrtilegt þriggja stjörnu hótel. Hljóðlátt umhverfi og falleg náttúra allt í kring gerir ferðina ennþá notalegri. Fallegar göngu- og hjólaleiðir sem tilvalið er að fara í eftir hring dagsins. Góður veitingastaður og bar.

Innifalið

  • Flug, skattar og gjöld Keflavík – BCN – Keflavík.
  • Flutningur á golfsetti,20.kg innrituð taska og 10kg. handfarangur.
  • Akstur frá flugvelli á hótel og tilbaka við brottför.
  • 5* hótel.
  • Morgunmatur
  • 6 golfhringir (spilað Stadium og Tour til skiptis 3x hvor völlur)
  • Golfkerra á Tour og golfbíll á Stadium.

*Aukalega í 10 náttaferð 1x auka á stadium og 2x Tour vellinum (samtals 9 golfhringir.)

Til að panta golfbíl á Tour vellinum þarf að hafa samband info@tasport.is / 552-2018

Gistináttaskattur ekki innifalinn.

Frekari upplýsingar og verðtilboð í síma 552-2018 eða info@tasport.is