Untitled design (20)
Sérferð - Sierra Golf Resort
Golfferð
Pólland
Gdansk

Sérferð dagana 13. – 20. september 2026

Tveir saman í herbergi – 239.800 kr á mann

Einn í herbergi – 279.800 kr á mann.

 

Frekari upplýsingar í síma 552-2018 eða info@tasport.is

Verð

Price range: 239.800 kr. through 279.800 kr.

LÝSING

Sierra Golf

Við hjá TA-Sport Travel höfum boðið upp á ferðir til Sierra Golf Club í Póllandi allt frá árinu 2017.

Í upphafi þótti þetta framandi kostur fyrir marga íslenska kylfinga – en í dag er Sierra orðinn einn vinsælasti
og eftirsóttasti golf áfangastaðurinn okkar Íslendinga.

Það sem gerir Sierra svo sérstakan er einstök blanda af hagstæðu verði, vandaðri þjónustu og ótrúlega fallegu umhverfi.

Pólverjar hafa tekið stórum skrefum fram á við í uppbyggingu golf íþróttarinnar og Sierra er þar engin undantekning, Sierra golf er sannkallað flaggskip þeirra við Gdansk. Nýlega var ráðinn landslagsarkitekt til að endurhanna umhverfið í kringum völlinn – með sérstakri áherslu á liti, blóm og trjágróður sem fylgja síðan litaþema eftir brautum. Útkoman er glæsileg og bætir enn frekar við upplifunina. Nýlega tóku þeir upp á að bjóða öllum kylfingum upp á glas að Prosecco á 10.teig sem hefur mælst mjög vel fyrir.

 

Golfvöllurinn sjálfur hentar öllum kylfingum – bæði byrjendum og lengra komnum, gæðin á svæðinu eru sannarlega sambærileg við það besta sem Spánn og Portúgal hafa upp á að bjóða. Við mælum eindregið með Sierra Golf Club – hvort sem þú ert að skipuleggja fyrstu golfferðina þína eða vilt prófa eitthvað nýtt og öðruvísi. Þetta er staður sem margir okkar viðskiptavina snúa aftur til, ár eftir ár.

 

Ekki skemmir verðið fyrir, miðað við þá gæði, þjónustu og upplifun sem þessi ferð býður upp á.

Þetta er sannarlega lúxus golf ferð á Kr. 239.800 á mann m.v. 2 saman í herbergi  – en eins og áður segir er takmarkað sætispláss.

Hentar fyrir:

  • Golfferðir með vinum eða félögum
  • Golfklúbba í æfinga- eða hópferð
  • Par sem vilja sameina golf og borgarferð
  • Fyrirtækjahópa sem vilja rólegt, vel skipulagt umhverfi

 

Aðgengi og samgöngur

  • Beint flug til Gdansk frá Íslandi
  • Stuttur akstur frá flugvelli (u.þ.b. 45 mín)
  • Möguleiki á að bæta við skoðunarferðum, kvöldverðum og afþreyingu í borginni

 

 

Gallery image of this property

bóka ferð


Myndagallerý