
Gleymdu þér í fyrsta flokks útivist – sólríkir skíðadagar í brekkum Austurríkis!
6. – 13. febrúar
Verð frá 259.800 kr á mann miðað við 2 fullorðna
Innifalið í verði er flug og farangur (einnig skíðabúnaður), gisting í 7 nætur með hálfu fæði, akstur til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn og kennsla á umhirðu skíða.
Lungau er vinsælt skíðasvæði í Austurríki / Salzburg sem saman stendur af 5 fjöllum og um 300 km af skíðabrekkum. Sólríkir dagar taka á móti þér í Lungau. Opnar og breiðar brekkur, vel troðinn snjór og sjaldgæft að sjá raðir í skíðalyfturnar.
Flogið er til Salzburg á laugardegi og heim aftur viku seinna
Fararstjóri ferðarinnar er Arnar Geir eða “Addi Nikk”. Addi hefur starfað sem skíðaþjálfari í 15 ár hér heima og í Noregi. Arnar er uppalinn á Húsavík þar sem hann hóf skíðaferilinn og hefur sinnt fararstjórn í fjölda skíðaferða og þekkir Lungau svæðið vel.
Hvert skíðasvæði er í um 3-20 mín fjarlægð frá hótelinu.
Grosseck-Speirreck er heimasvæðið í um 3-5 mín frá hótelinu. Þetta er skemmtilegt svæði sem liggur um tvo bæi. Annar bærinn er Mauterndorf þar sem hótelið er staðsett og hinn bærinn er St. Michael.
Ainec-Katchberg eru 2 fjöll enn tengjast saman. Þar er gríðarlegt úrval af brekkum og veitingastöðum, þar er A1 brekkan sem er ein lengsta og besta brekkan í Lungau.
Fanningberg er minnsta svæðið en er falið leyndarmál. Þar eru frábærar, breiðar og langar brekkur.
Obertauern er frægt svæði. Bítlarnir tóku upp þar myndina Help og er nafn þeirra stillt upp á svæðinu. Oberntauern er stærsta svæðið í Lungau, svæði liggur í hring í dalnum og það getur tekið heilan dag að skíða hringinn með stoppi á veitingastað í hádegismat. Þetta svæði liggur hæðst allra svæðana, það er algjörlega þess virði að skíða þetta svæði, frábært útsýni yfir dalinn og víðar.
Keflavík – Salzburg 6.febrúar kl. 08:00 – 12:50 (Icelandair)
Salzburg – Keflavík 13.febrúar kl. 14:00 – 17:30 (Icelandair)
Haus Lungau er fjölskyldurekið hótel,staðsett í Mautendorf en þar er frægur kastali sem gaman er að skoða og fræðast um sögu hans. Mautendorf er rólegur og fallegur bær og er mikil kyrrð og ró þar.
Salzburg W.A. Mozart-flugvöllurinn er 119,3 km frá hótelinu.
