Síðumúla 25 108 Reykjavík Sími 552-2018 info@tasport.is (29)
Tottenham Hotspur - Newcastle
Bretland
London
4

Tottenham Hotspur – Newcastle

28. -31. Ágúst 2026

Hafið samband í síma 552-2018 eða sendið okkur póst á info@tasport.is til að fá tilboð.

Tottenham Hotspur – Newcastle

Stjóravandræði Tottenham Hotspur hafa verið eitt helsta fréttaefnið í Premier League. Spurs fór í gegnum þrjá stjóra á 10 mánuðum, áður en Roberto De Zerbi var ráðinn í vor og bjargaði skútunni frá strandi með góðum lokaspretti þegar verulega var farið að syrta í álinn. Tottenham er stórhuga á leikmannamarkaði og ætlar sér augljóslega að gera mun betur en 17. sætið, sem hefur verið hlutskipti liðsins tvær leiktíðir í röð.

Tottenham Hotspur Stadium, heimavöllur Spurs, er án efa sá glæsilegasti í Englandi. Fullskipaður tekur hann 62.850 áhorfendur.

 

Dæmi um útsýni úr sæti.

Hvernig á að bóka?

  • Ef þú ert ein/n á ferð þarftu að velja “Einbýli” x 1
  • Ef tveir eru saman í herbergi (tveir fullorðnir eða fullorðinn og barn) þarf að velja “Tvíbýli” x 2
  • Ef þrír fullorðnir eru að bóka saman þarf fyrst að velja “Tvíbýli” x 2 og setja í körfuna og velja síðan “Einbýli” x 1

 

Staðfestingargjald, fullgreiðsla ferðar og afbókanir

  • Staðfestingargjald þarf að greiða samhliða pöntun.
  • Lokauppgjör ferðar þarf að fara fram ekki seinna en 8 vikum fyrir auglýsta brottför. Viðskiptavinir fá senda áminningu frá okkur þegar komið er að lokauppgöri.
  • Um afbókanir vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæða, gilda almennar reglur og skilmálar.
  • Ferðagögn eru send 7-10 dögum fyrir brottför.

bóka ferð

Myndagallerý