Hópferð á vetrarjazz í Tórshavn
31. janúar – 3. febrúar 2025
Stórskemmtileg jazzferð til Færeyja með íslenskri fararstjórn.
Fyrir allar fyrirspurnir hafið samband í síma 552-2018 eða á info@tasport.is
214.800 kr. – 244.800 kr.
Ekki missa af einstakri ferð og skelltu þér á vetrarjazz í Færeyjum 2025!
Fáðu tónlistina beint í æð frá hinum frábæru tónlistarmönnum sem munu spila á hátíðinni. Þarna koma saman m.a. íslenskir, færeyskir og danskir listamenn og eru þar á meðal heimsfrægir listamenn; meðal annars Kurt Rosenwinkel (USA), Mikael Máni (IS), Yuval Ron Trio (DE), Silva & Steini (IS) og Espen Berg Trio (NO).
Brottfarardagur og flug:
Flogið er með Atlantic Airways.
31.janúar – brottför frá Keflavík kl.11:25
3.febrúar – brottför frá Vogaflugvelli kl. 09:10
Fararstjóri: Jóhann Valbjörn
Hópurinn fer með rútu frá flugvelli og verður ekið um leið liggur út á Bö sem er fallegt þorp við Saurvogsfjörð þaðan sem sést út til Mykineseyju, Tindhólm og út á Vesturhafið í átt til Íslands. Báðum stöðum bregður fyrir í Disneymyndinni Peter Pan og Wedy en að sjálfsögðu er ”Neverland” Færeyjar.
Fararstjóri mun fara yfir sögu Færeyja og einnig tónlistarsögu með áherslu á dægurtónlist, djass og blús. Hópurinn mun því vera vel upplýstur og tilbúinn í tónaflóð helgarinnar þar sem boðið er upp á 10 tónleika víða um Þórshöfn. Gist verður á hótel Brandan sem er örstutt frá og í göngufæri við hina ýmsu staði þar sem tónleikar fara fram.
Fararstjóri mun leiða hópinn á tónleika og einnig verður farið á sögulega staði þar sem hópurinn upplifir ógleymanlega ferð.
Dagskráin er afar fjölbreytt og skemmtileg þar sem boðið er upp á einstaka upplifun í tónlist og sögu Færeyja.
31.janúar – brottför frá Keflavík kl.11:25
3.febrúar – brottför frá Vogaflugvelli kl. 09:10
Hotel Brandan er fjögra stjörnu hótel staðsett í Þórshöfn, 2,3 km frá Sandagerði-ströndinni.
Á hótelinu er líkamsrækt, verönd og veitingastaður. Öll herbergin á hótelinu eru með skrifborð, wifi, ketil, flatskjá, sérbaðherbergi, rúmföt, fataskáp og handklæði.
Ath. Ekki innifalið: Kvöldverður á sunnudegi, drykkir